35 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Einn er á gjörgæslu og í öndunarvél. Meðalaldur þeirra sem liggja inni er 62 ár, að því er segir í tilkynningu.
7.222 sjúklingar eru í Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.517 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 218.