Kjartan Magnússon varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar í jómfrúarræðu sinni á Alþingi fyrr í dag og sagði hann stöðuna grafalvarlega.
Þá óskaði hann eftir upplýsingum um hvort eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og ráðuneyti sveitarstjórnarmála hafi brugðist við sannkölluðu neyðarkalli sem Reykjavík sendi Alþingi fyrir tæpum tveimur árum vegna slæmrar fjárhagsstöðu sinnar.
Í umsögn borgarinnar sagði:
„Vandinn snýst hins vegar ekki aðeins um skammtíma fjármögnunarvanda heldur stefnir í algerlega ósjálfbæran rekstur til margra ára. Þessa ósjálfbærni er ekki hægt að leysa með hækkun leyfilegrar skattlagningar eða þjónustugjalda eða með stórfelldum niðurskurði í útgjöldum borgarinnar, sem varða að langmestu leyti leik- og grunnskóla og velferðarþjónustu. Hefðbundnar aðferðir eru ekki í boði. Þá er ekki hægt að leysa þetta með stórfelldum lánveitingum þar sem veltufé frá rekstri mun ekki til margra ára framundan standa undir afborgunum.“
Kjartan sagði að síðan neyðarkallið var sent hafa fjármál borgarinnar versnað mjög og að borgin hafi nú safnað skuldum linnulítið í aldarfjórðung og þær séu nú komnar yfir 400 milljarða króna.
„Það þýðir að borgin hefur skuldsett hvern íbúa sinn um þrjár milljónir króna og hverja fjögurra manna fjölskyldu um rúmar 12 milljónir króna,“ bætti hann við.
Hann spurði einnig hvort Reykjavíkurborg væri komin í gjörgæslu hjá sveitarstjórnarráðuneytinu eða hvort hún væri á leið þangað. „Áðurnefnt erindi borgarinnar ætti að hafa gefið fullt tilefni til þess fyrir tveimur árum. Ef ekki, er enn meiri ástæða til þess nú, þar sem fjárhagsstaða borgarinnar hefur haldið áfram að versna og samkvæmt áætlunum er stefnt að áframhaldandi ósjálfbærum rekstri og frekari skuldsetningu,” sagði Kjartan.
Að lokum sagðist hann myndu leggja fram formlega fyrirspurn um málið til ráðherra sveitarstjórnarmála.