Vonast til að undirbúa aðgerðir í dag

Aðgerðir hefjast í dag ef veður og færð leyfa.
Aðgerðir hefjast í dag ef veður og færð leyfa. mbl.is/Ari

Lögreglan á Suðurlandi mun undirbúa aðstöðu og búnað við Þingvallavatn í dag ef veður og færð leyfa, til þess að endurheimta líkamsleifar þeirra sem fórust þar í síðustu viku.

Framvegis verður sett upp ytri lokun við bakka Þingvallavatns þar sem almenningur á ekki að fara inn, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Innri lokun verði einnig sett en að henni komist fjölmiðlar.

Ekki verði gefnar upplýsingar um einstaka rannsóknarþætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert