2.252 kórónuveirusmit greindust innanlands síðastliðinn sólarhring. Þetta kemur fram á covid.is.
Af þeim voru 29 prósent í sóttkví við greiningu.
Þetta er langmesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum sólarhring.
18 greindust á landamærunum en 304 landamærasýni hafa verið greind.
14 daga nýgengi smita á hverja 100 þúsund íbúa stendur nú í 5.240. Nýngengi á landamærunum er 202.
Fréttin hefur verið uppfærð.