Lóðaverðið rýkur upp í Reykjavík

N1 við Ægissíðu.
N1 við Ægissíðu. mbl.is/Þórður

Heimildir Morgunblaðsins herma að algengt fermetraverð á lóðum í Reykjavík liggi nú á bilinu 100-120 þúsund krónur. Fyrir tveimur árum mat ráðgjafi borgarinnar verðið að jafnaði 50 þúsund krónur. Verðið hefur því að minnsta kosti tvöfaldast á innan við tveimur árum.

Hið síhækkandi lóðaverð færir gríðarleg verðmæti í hendur olíufélaganna sem hafa undirritað samninga um fjölda lóða sem í dag eru lagðar undir bensínstöðvar, en ætlunin er að breyta í blandaða byggð íbúðabyggðar og atvinnuhúsnæðis.

Fulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur hafa kallað eftir fundargerðum samninganefndar borgarinnar, sem leiddi vinnuna við gerð fyrrnefndra samninga. Dagur B. Eggertsson hefur sagt frá því að nefndin hafi átt yfir 60 fundi við fulltrúa olíufélaganna frá árinu 2019 og að þeir hafi leitt til samninganna sem um ræðir.

Leynd hvílir yfir gögnunum en borgarfulltrúar hafa fengið að heimsækja gagnaherbergi í Ráðhúsi Reykjavíkur og fletta í gegnum gögn á spjaldtölvu sem þar hefur verið komið fyrir. Heimildir ViðskiptaMoggans herma að þar sé að mestu gripið í tómt og ómögulegt að átta sig á markmiðum og framvindu mála, þar sem milljarða hagsmunir borgarbúa voru undir.

Nánar má lesa um málið í ViðskiptaMogganum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert