Norðurlandaþjóðirnar hafa ákveðið að ráðast í greiningu á sameiginlegri getu sinni til að rannsaka, þróa og framleiða bóluefni, að því er segir í tilkynningu.
Ráðist er í verkefnið að frumkvæði iðnaðar- og viðskiptaráðherra Svía og segir í tilkynningunni að heimsfaraldur Covid-19 hafi varpað ljósi á mikilvægi öflugs samstarfs Norðurlandaþjóðanna, meðal annars með samhæfingu aðgerða og viðbúnaði gegn skorti á hráefnum og aðföngum þegar vá stendur fyrir dyrum.
Þá hefur einnig átt sér stað umræða um aðgerðir til að tryggja aðföng á Norðurlöndunum, möguleika á sameiginlegri framleiðslu lífsnauðsynlegra lyfja og samstarfi innan Evrópu um viðbúnað við faraldri.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, standa sameiginlega að þátttöku Íslands í norræna greiningarverkefninu.
Í verkefninu verður í fyrsta lagi könnuð samlegðaráhrif og helstu tækifæri til samstarfs á sviði bóluefna, í öðru lagi helstu veikleikar í núverandi framleiðslu og dreifingu bóluefna á Norðurlöndum á tímum faraldurs og í þriðja lagi hvernig norrænt samstarf gæti styrkt þátttöku landanna í verkefnum Evrópusambandsins á þessu sviði.
„Mikilvægi norræns samstarfs verður seint ofmetið og það er rík ástæða til að styrkja það enn frekar. Þjóðirnar búa að sterkum innviðum og miklum mannauði og geta áorkað miklu með því að leggja saman krafta sína. Ég fagna þessu frumkvæði Svía,“ er haft eftir Willum í tilkynningunni
Þá er haft eftir Áslaugu Örnu að það sé orðið löngu tímabært að greina þau tækifæri sem eru til staðar hér á landi þegar kemur að rannsóknum og nýsköpun í heilbrigðistækni og heilbrigðisþjónustu. „Íslendingar geta lagt mikilvægan skerf til rannsókna og nýsköpunar á sviði bóluefna, í góðu samstarfi við grannþjóðir okkar á Norðurlöndunum. Við fögnum því verkefni sem nú fer af stað og hlökkum til að sjá tillögur um næstu skref,“ er haft eftir Áslaugu.