2.167 kórónuveirusmit greindust innanlands síðastliðinn sólarhring. Þetta kemur fram á upplýsingavef almannavarna um faraldurinnn, covid.is.
Af þeim voru aðeins 19 prósent í sóttkví við greiningu.
14 smit voru greind á við landamæraskimun.
Tæplega tíu þúsund manns sæta nú einangrun vegna virks Covid-19 smits. Svipaður fjöldi er í sóttkví hér á landi.
Í gær greindust 2.252 smit innanlands, langmesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum sólarhring.
Fréttin hefur verið uppfærð.