Karl á níræðisaldri með Covid-19 lést á legudeild í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.
32 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.
8.361 sjúklingar eru í Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.708 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala (í einangrun eða innlögn) eru 256.