Í dag er 112 dagurinn haldinn um allt land. Markmið dagsins er að minna á neyðarnúmer allra landsmanna 112 og minna á mikilvægi kunnáttu í skyndihjálp.
Áhersla 112 dagsins er að þessu sinni lögð á að vinna gegn hverskonar ofbeldi, en ofbeldishegðun hefur farið vaxandi þau tvö ár sem Covidfaraldurinn hefur geysað.
Vegna sóttvarnartakmarkana verður dagskrá 112 dagsins streymt á samfélagsmiðlum, á heimasíðu Neyðarlínunnar 112.is og á heimasíðum samstarfsaðilanna, en dagskráin hefst kl. 12.
Finna má dagskrá 112 dagsins hér.
Þar mun Þórhallur Ólafsson framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar og Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra flytja stutt ávörp. Síðan verða börnum í 4. bekk grunnskóla afhent verðlaun í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Rauði krossinn mun síðan útnefna Skyndihjálparmann ársins.
Loks verður kynnt gagnvirkt myndband þar sem miðlað er fræðslu um samskipti við neyðarvörð, þegar hringt er í neyðarnúmerið 112.
Neyðarlínan miðlar fræðsluefni á gagnvirku myndbandi um rétt og skilvirk samskipti við neyðarverði sem eru þeir sem svara í símann þegar hringt er í neyðarnúmerið 112 og þess vegna mikilvægustu hlekkirnir í viðbragðinu. Horfa má á myndbandið með því að smella á þennan hlekk.