Rebekka Líf Ingadóttir
Ákveðið hefur verið að fresta aðgerðum við að ná flugvélinni TF-ABB upp úr Þingvallavatni þar sem vatnið hefur lagt á ný og er reiknað með að reynt verði aftur eftir nokkrar vikur.
Í samtali við mbl.is segir Rúnar Steingrímsson, lögreglufulltrúi lögreglunnar á Suðurlandi, að bíða þurfi eftir því að hitni verulega í veðri, ísinn haldi áfram að þykkna og er nú um fjórir eða þrír sentimetrar en hann var rúmlega einn sentímeter í gær.
„Svo brutum við upp eitthvað í morgun og það er strax byrjað að leggja aftur það sem við brutum upp, þannig að vatnið heldur bara áfram að leggja og ísinn að þykkna,“ segir Rúnar.
„Það þarf að hitna verulega til þess að það myndi breytast og vatnshitinn er orðinn svo lágur líka.“