Karlmaður á þrítugsaldri, smitaður af Covid-19, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gær.
32 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.
8.188 sjúklingar eru undir eftirliti hjá Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.579 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 248.