Röskun hjá Strætó vegna veðurs

Þetta á við einhverja vagna í dag.
Þetta á við einhverja vagna í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óveður og ófærð hefur áhrif á nokkrar leiðir Strætó á landsbyggðinni. Eins og staðan er núna er enginn akstur á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar en stjórnstöð Strætó tilkynnir um leið og akstur hefst á nýjan leik.

Ekkert er farið á milli Reykjavíkur og Selfoss enda eru Hellisheiði og Þrengsli lokuð. Áætlað er að ekið verði á milli Selfoss og Hvolsvallar.

Nánari tilkynningar um akstur má nálgast á heimasíðu Strætó og Twitter-reikningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert