Framkvæmdanefnd kirkjuþings hefur gengið frá ráðningu Birgis Gunnarssonar til að gegna starfi framkvæmdastjóra rekstrarstofu þjóðkirkjunnar. Alls bárust 44 umsóknir um stöðuna. Frá þessu er greint á vef þjóðkirkjunnar. Birgir mun hefja störf í júní 2022.
Hann hefur verið bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar undanfarin ár, var þar áður forstjóri Reykjalundar, endurhæfingarmiðstöðvar í Mosfellsbæ.
Hann er fæddur 1963, menntaður rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur einnig lokið námi í rekstri og stjórnun frá Háskólanum í Gautaborg.
Kirkjan segir Birgi hafa umfangsmikla reynslu af rekstri og stjórnun stórra stofnana. Hann var forstjóri Reykjalundar í 13 ár og hafði þar áður verið forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki í 16 ár.
Birgir hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, s.s. setið í stjórn Norræna heilbrigðisháskólans í Gautaborg, verið formaður Landssambands heilbrigðisstofnana, formaður Félags forstöðumanna heilbrigðisstofnana og ýmislegt fleira.
Sem fyrr segir sóttu 44 um stöðuna, en nafnleynd var á umsækjendum. Um nýja stöðu er að ræða en verkefni hafa að mörgu leyti verið á herðum biskups til þessa, og öðrum starfsmönnum Biskupsstofu. Ákveðið var á síðasta kirkjuþingi að auglýsa stöðuna. Í starfsauglýsingu var kveðið á um trúnað við umsækjendur og nafnleynd.