Enginn í öndunarvél en 47 liggja inni

47 sjúklingar liggja inni á Landspítala með Covid-19.
47 sjúklingar liggja inni á Landspítala með Covid-19. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

47 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu. Enginn er í öndunarvél.

Þetta kemur fram á vef Landspítala.

Níu sjúklingar lögðust inn í gær með Covid-19, þar af tveir vanbólusettir, einn fullbólusettur og sex örvunarbólusettir.

Alls eru 7.123 sjúklingar í Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.198 börn. Allir með virkt kórónuveirusmit eru undir eftirliti deildarinnar.

Starfsmenn spítalans sem eru frá í einangrun vegna veirunnar eru 313 og hafa þeir aldrei verið fleiri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert