2.489 smit innanlands – metfjöldi smita

2.489 greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær. Þetta kem­ur fram á covid.is en alls greind­ust 2.595 í gær, þar af 106 á landa­mær­un­um.

Er þetta mesti fjöldi smita sem greinst hef­ur á ein­um sól­ar­hring inn­an­lands en áður greind­ust mest 2.252 smit 8. fe­brú­ar.

Ný­gengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þúsund íbúa er 6.778.

Tek­in voru 4.841 inn­an­lands­sýni og 1.317 landa­mæra­sýni.

10.433 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19.

54 eru á sjúkra­húsi, þar af þrír á gjör­gæslu.

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert