2.881 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þetta kemur fram á covid.is en alls greindust 2.957 í gær, þar af 76 á landamærunum.
Er þetta mesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum sólarhring innanlands en áður greindust mest 2.489 smit í fyrradag.
Tekin voru 5.405 innanlandssýni og því ljóst að 53% sýna voru jákvæð.
11.494 eru nú í einangrun vegna Covid-19.
50 eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.