2.317 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og hafa nú 102.086 kórónuveirusmit greinst hérlendis frá upphafi faraldurs. 27,7% Íslendinga hafa greinst með Covid-19 á einhverjum tímapunkti.
4.721 sýni voru greind innanlands og er hlutfall jákvæðra sýna því um 50%.
885 sýni voru tekin við landamærin en þar greindust 92 smit.
Nýgengi innanlandssmita á hverja 100.000 íbúa sl. 14 daga er nú 7.469 og hefur það aldrei verið jafn hátt. Nýgengi við landamærin mælist aftur á móti 249.
11.880 manns eru nú í einangrun og 52 á sjúkrahúsi, þar af fjórir á gjörgæslu.
Fréttin hefur verið uppfærð