Héraðsdómur Norðurlands dæmdi í dag kennara alls 8 milljónir í skaðabætur vegna ólögmæts brottrekstrar, þar af sex milljónir vegna fjártjóns og tvær milljónir vegna miska. Þá var Dalvíkurbyggð gert að greiða 1,2 milljónir í málskostnað.
Kennaranum var vikið úr starfi eftir að hafa fengið kinnhest frá nemanda og veitt honum kinnhest til baka, að því er greint er frá á vef Kennarasambands Íslands.
Taldi kennarinn nemandann hafa sýnt sér ókurteisi þegar hann gekk um svæði í íþróttatíma utan húss í óþökk kennarans, en hann settist þá á hækjur sér og tók um úlnlið stúlkunnar og bað hana að færa sig.
Stúlkan svaraði með orðunum: „ekki fokking snerta mig,“ og gaf kennaranum kinnhest. Í dómsorðinu er haft eftir kennaranum að honum hafi brugðið við og hann hafi ósjálfrátt farið í sjálfsvörn með því að gefa nemandanum „léttan kinnhest“.
Var kennararinn sendur í launað leyfi í kjölfarið þar sem málið var kært til lögreglu en síðar var það fellt niður – í kjölfarið var kennaranum sagt upp. Hafði hann þá skilað andmælum til bæjaryfirvalda.
Taldi dómurinn atvikið ekki vera gróft brot í starfi, svo að það réttlæti fyrirvaralausan brottrekstur.