HR einn af bestu ungu háskólum heims

Í tilkynningunni segir að listi Times Higher Education byggi á …
Í tilkynningunni segir að listi Times Higher Education byggi á mati á þrettán lykilþáttum háskólastarfs. Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík

Háskólinn í Reykjavík er í 53. sæti á nýbirtum lista tímaritsins Times Higher Education yfir bestu ungu háskóla heims (Young Universities Ranking). Á listanum eru horft til 750 háskóla sem hafa starfað í 50 ár eða skemur. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík.

„Við erum að sjálfsögðu mjög ánægð með þennan árangur sem staðfestir niðurstöður gæðamata og vottana undanfarinna missera,“ er haft eftir Dr. Ragnhildi Helgadóttur, rektor Háskólans í Reykjavík, í tilkynningu.

Dregið úr vægi orðspors

Í tilkynningunni segir að listi Times Higher Education byggi á mati á þrettán lykilþáttum háskólastarfs, svo sem á gæðum kennslu og rannsókna, fjölda tilvitnana í vísindagreinar eftir starfsfólk háskólans, alþjóðlegum tengslum og samstarfi við atvinnulífið.

Mælikvarðarnir eru þeir sömu og notaðir eru þegar háskólar eru metnir á aðallista Times Higher Education en þegar kemur að ungu háskólunum er dregið úr vægi orðspors og meiri áhersla lögð á kennslu, rannsóknir, hagnýtingu rannsókna og alþjóðavæðingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert