Samtals 29 sóttu um stöðu upplýsingafulltrúa í nýju matvælaráðuneyti. Staðan var auglýst fyrr í mánuðinum og rann umsóknarfrestur út 14. febrúar.
Ráðuneytið tók til starfa 1. Febrúar. Undir matvælaráðuneyti falla málefni sjávarútvegs, landbúnaðar, fiskeldis, matvælaöryggis, landgræðslu og skógræktar. Fram kom í auglýsingunni að loftslagsmál, aðgengi að hollum mat og fæðuöryggi landsmanna verða lykilbreytur í stefnumörkun framtíðarinnar.
Þá segir jafnframt að starf upplýsingafulltrúa feli í sér kynningu á starfsemi ráðuneytisins og verkefnum þess og er ráðherra, ráðuneytisstjóra og öðrum starfsfólki til ráðgjafar um samskipti við fjölmiðla. Starfið felst í að fylgjast með fréttaflutningi af starfsemi ráðuneytisins og ráðherra og veita fjölmiðlum og almenningi upplýsingar. Upplýsingafulltrúi tekur einnig þátt í upplýsingamiðlun innan ráðuneytisins, en hann heyrir undir skrifstofustjóra skrifstofu fjármála.
Farið er fram á háskólamenntun sem nýtist í starfi, mjög gott vald á íslensku og ensku, framúrskarandi færni til að tjá sig í ræðu og riti, góð færni í notkun samfélagsmiðla, að geta unnið hratt undir álagi auk þess að búa yfir frumkvæði, ábyrgð, samvinnu- og samskiptahæfni og góðri framkomu. Þá er einnig krafa um góða almenna hæfni í Office 365 og kunnátta í vefumsjónarkerfum er talinn kostur.
Umsækjendurnir eru í stafrófsröð: