Fanney Rós Þorsteinsdóttir hefur verið skipuð ríkislögmaður frá og með 28. febrúar, en hún er fyrsta konan sem er skipuð í embættið. Fanney hafði áður verið settur ríkislögmaður eftir að forveri hennar fór í veikindaleyfi.
Fanney var meðal tveggja umsækjenda um stöðuna, en auk hennar sótti Þórhallur Haukur Þorvaldsson, hæstaréttarlögmaður og meðeigandi hjá Draupni lögmannsþjónustu, um stöðuna. Fram kemur í tilkynningu vegna skipunarinnar að Þórhallur hafi dregið umsókn sína til baka áður en ráðgefandi hæfnisnefnd hóf störf við að leggja mat á hæfi þeirra. Var Fanney Rós talin uppfylla öll hæfis- og hæfnisskilyrði.
Fanney Rós lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2005 og framhaldsnámi (LLM) við Columbia-háskóla 2012. Hún hefur starfað hjá embætti ríkislögmanns frá árinu 2012 en áður var hún aðstoðarmaður hæstaréttardómara, fulltrúi hjá Mörkinni lögmannsstofu og ritari kærunefndar útboðsmála. Þá var hún um skeið stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Fanney Rós hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 2006 og fyrir Hæstarétti 2014.
Þá segir jafnframt í tilkynningunni að Fanney Rós hafi fjölbreytta og yfirgripsmikla reynslu af málflutningi á öllum dómstigum auk þess sem hún hefur flutt mörg mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.