Alls liggja 47 sjúklingar á Landspítala með Covid-19, þar af einn á gjörgæslu. Enginn er í öndunarvél. Covid-sýktum sjúklingum fjölgar um fimm milli daga en í gær voru þeir 42.
Meðalaldur innlagðra er 71 ár, að því er fram kemur á vef Landspítala.
Covid-sýktum starfsmönnum stofnunarinnar hefur fækkað töluvert frá því síðustu daga og eru nú 337. Þeir voru 523 í gær.