Maðurinn sem var skotinn af lögreglu á Egilsstöðum í ágúst og var ákærður fyrir að hafa skotið af byssu sinni nokkrum sinnum, bæði inni í húsi fyrrverandi manns sambýliskonu sinnar og víðar, játaði brot sín að hluta en neitaði meðal annars sök um tilraun til manndráps. Þetta kom fram við aðalmeðferð málsins á í morgun í Héraðsdómi Austurlands.
Líkt og mbl.is hefur greint frá er maðurinn ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, eignarspjöll og vopnalagabrot, hótun, brot gegn barnaverndarlögum, brot gegn valdstjórn og hættubrot. Fram kemur í ákæru málsins að hann hafi að kvöldi 26. ágúst ruðst heimildarlaust inn í íbúðarhúsið á Dalseli, undir áhrifum áfengis og vopnaður hlaðinni haglabyssu af tegundinni Beretta A400Lite og hlaðinni 22 kalíbera skammbyssu, með þeim ásetningi að bana húsráðanda.
Var húsráðandi ekki heima en maðurinn skaut þremur skotum úr haglabyssunni innandyra og tveimur úr skammbyssunni. Þá skaut hann einnig tveimur skotum í hlið bifreiðar og framan á annan bíl, bæði með haglabyssunni og skammbyssunni.
Í ákærunni kemur jafnframt fram að maðurinn hafi hótað sambýliskonu sinni og hótað tveimur drengjum sem voru í húsinu sem hann réðst inn í, fjórtán og tólf ára, með hlaðinni haglabyssu þar sem þeir sátu í sófa. Drengjunum tókst að flýja út um dyr sem lágu út í garð og inn í nærliggjandi skóg.
Maðurinn neitaði við aðalmeðferðina að hafa hótað sambýlis konu sinni. Hann neitaði um ásetning að hafa ætlað að bana húsráðanda og en neitaði sök um tilraun til manndráps og hættubrot. Hann játaði hins vegar brot gegn vopnalögum, eignaspjöll og að hluta brot gegn valdstjórninni. Þá neitaði hann sök um að hafa hótað drengjunum og að hluta brotum gegn valdstjórn og vopnalagabrotum. Þau valdstjórnarbrot sem hann játar tengjast því að hafa skotið af haglabyssu út úr húsinu að lögreglumönnum sem voru í vari á bak við bifreið, en hann neitaði að hafa gengið að þeim og miðað að þeim hlaðinni haglabyssu.
Maðurinn samþykkti jafnframt bótaskyldu í málinu varðandi munatjón þó hann neiti fjárhæðum.
Uppfært: Í upphaflegri frétt kom fram að maðurinn hefði játað um ásetning um að hafa ætlað að bana húsráðanda og neitað sök um tilraun til manndráps. Rétt er að hann neitaði um ásetning að hafa ætlað að bana húsráðanda líkt og neitun um tilraun til manndráps ber með sér. Hefur fréttin verið uppfærð samkvæmt því.