Aðalmeðferð í máli héraðssaksóknara gegn karlmanni sem ákærður er fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst í fyrra hófst í morgun. Lögreglan skaut manninn í aðgerðum sínum. Maðurinn mætti fyrir héraðsdóm Austurlands á Egilsstöðum í morgun, en skýrslutökur fara nú fram.
Í skotárásinni fór maðurinn vopnaður haglabyssu og riffli á heimili annars manns í götunni Dalseli sem hann leitaði að. Sá maður hafi hins vegar ekki verið heima þegar byssumanninn bar að garði. Heimildir herma þó að börn mannsins hafi verið heima og flúið þar sem þeim stóð ógn af byssumanninum sem hafði skotið á rúðu í húsinu á móti áður en lögreglan kom á staðinn.
Fjöldi íbúa í Dalseli varð var við skotárásina sem stóð yfir í rúman hálftíma að sögn vitna. Minnst einn varð vitni að því þegar byssumaðurinn var skotinn í aðgerðum lögreglu.
Að sögn sjónarvottar skaut lögreglan byssumanninn í kviðinn eftir að hann neitaði að leggja niður vopn sín. Maðurinn var svo fluttur til aðhlynningar í Reykjavík með sjúkraflugi. Var hann á gjörgæslu fyrst um sinn en var svo fluttur á almenna deild.