Landspítalinn hefur verið færður af hættustigi á neyðarstig, að því er fram kemur á vef spítalans.
51 sjúklingur liggur á spítalanum smitaður af veirunni. Einn er á gjörgæslu með Covid en vegna annars, segir á vef spítalans.
Meginástæður fyrir flutningi spítalans á neyðarstig eru, samkvæmt farsóttanefnd, mikill fjöldi og aðflæði Covid-smitaðra sjúklinga, fá legurými, miklar annir á Covid-göngudeild, mikill fjöldi starfsmanna í einangrun og óheyrilegt álag á heilbrigðiskerfið í heild sinni.
Þá er staðan á bráðamóttöku einnig sögð mjög erfið og fráflæði þaðan mjög tregt.
„Metfjöldi bættist í hópinn í gær eða 14 en einungis 5 voru útskrifaðir úr honum. Það er því þröngt setinn bekkurinn og í dag verður allt kapp lagt á að hreyfa Covid sjúklinga í önnur úrræði til að eiga rými fyrir bráðainnlagnir dagsins. Í gær greindust yfir 80 starfsmenn með Covid og eru nú að lágmarki 369 frá vinnu vegna þess,“ segir á vef spítalans.