Sprungin dekk eftir holu á Arnarnesvegi

Nokkrir bílar voru dregnir á brott í kvöld eftir að …
Nokkrir bílar voru dregnir á brott í kvöld eftir að hafa lent ofan í sömu holunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nokkrir ökumenn lentu í því að dekk á bíl þeirra sprungu eftir þeir höfðu keyrt ofan í sömu holuna á Arnarnesvegi í Kópavogi í kvöld.

Þeir sátu því um stund allir í röð og biðu eftir því að vera dregnir á brott.

Þetta staðfestir bílstjóri hjá Króki í samtali við mbl.is, en fyrirtækið aðstoðaði við aðgerðirnar í kvöld.

Sumir með tvö sprungin dekk

Bílstjórinn segir að bílarnir hafi verið á bilinu fimm til sjö talsins og ýmist verið með eitt eða tvö sprungin dekk.

Þá bætir hann við að bílstjórar hjá Króki hafi í þurft að draga þó nokkra bíla í dag vegna atvika sem þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert