Kona á sextugsaldri með COVID-19 lést á Landspítala í gær. Þetta kemur fram á vef Landspítala.
Alls hafa 48 einstaklingar látist á Landspítala frá upphafi faraldurs en 69 á landsvísu.
56 sjúklingar liggja inni á Landspítala með Covid-19. Fjórir eru á gjörgæslu, þrír þeirra í öndunarvél.