Tveir karlar á áttræðisaldri með Covid-19 létust

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Jón Pétur

Tveir karlmenn á áttræðisaldri með Covid-19 létust á gjörgæsludeild í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítala.

64 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Fjórir eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél.

Meðalaldur þeirra sem liggja inni er 67 ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert