Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag karlmann á þrítugsaldri í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 6. apríl, vegna alvarlegrar líkamsárásar í miðborginni aðfaranótt síðastliðins laugardags.
Er þetta gert á grundvelli rannsóknar- og almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.
Á myndskeiði sem hefur gengið milli fólks á samfélagsmiðlum má sjá stunguárás sem varð í Austurstræti í Reykjavík aðfaranótt laugardags. Er myndefnið meðal gagna sem lögregla styðst við í rannsókn málsins.
Í tilkynningu lögreglunnar segir að rannsóknin miði vel en að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.