Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins. Hann hefur störf í næstu viku. Frá þessu er greint í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Dúi er með diplóma í frönsku og markaðs- og útflutningsfræðum og hefur fjölbreytta reynslu úr kynningarmálum og fjölmiðlum. Hann hefur undanfarið starfað sem verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni. Frá 1991 hefur hann starfað við sjálfstæða framleiðslu fyrir innlendar og erlendar sjónvarpstöðvar, bæði í handritaskrifum og myndgerð, meðal annars fyrir Stöð 2. Hann er einnig höfundur bókarinnar Gengið til rjúpna og var áður formaður Skotvís.
Alls bárust 29 umsóknir um starfið en það var auglýst þann 28. janúar. Nýtt matvælaráðuneyti tók til starfa í febrúar og er unnið að matvæla- og fæðuöryggi Íslands samkvæmt hugmyndafræði einnar heilsu.