Áform um endurbyggingu vegarins um Mikladal

Frá Patreksfirði.
Frá Patreksfirði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Til stendur að leggja bundið slitlag á tæplega fimm kílómetra vegakafla milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar fáist til þess leyfi.

Vegagerðin hefur í það minnsta sótt um framkvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu á 4,9 km kafla í Mikladal en bb.is vekur athygli á því í dag. 

Þar segir jafnframt að skipulags- og umhverfisráð Vesturbyggðar hafi tekið erindið fyrir og leggi til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði veitt.

Ef af verður gætu verklok orðið í september 2023 en áætlað er að leggja bundið slitlag á tvo kílómetra á þessu ári og þrjár kílómetra á næsta ári. 

Umtalsverðar skemmdir hafa orðið á veginum á síðustu árum en þar hefur umferð flutningabíla aukist talsvert með auknum umsvifum í atvinnulífinu á svæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert