Til stendur að stofnsetja íslenskt sendiráð í Varsjá í Póllandi síðar á þessu ári. Á vef stjórnarráðsins kemur fram að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á kynnt tillögu þess efnis á fundi ríkistjórnarinnar síðastliðin föstudag og var utanríkismálanefnd kynnt málið í morgun.
Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi, átti í hádeginu fund með utanríkisráðherra þar sem honum var greint frá áformunum, en pólsk stjórnvöld hafa starfrækt sendiskrifstofu í Reykjavík frá 2008. Í tillögunni er lagt til að fyrirsvar vegna Litháen, auk Úkraínu og Belarús, verði fært til hinnar nýju sendiskrifstofu.
Pólitísk, efnahagsleg og menningarleg samskipti Íslands og Póllands hafa aukist verulega á undanförnum árum. Fjöldi Íslendinga sem eiga uppruna sinn að rekja til Póllands fer sívaxandi og hafa samskipti landanna aukist verulega og eflt viðskipta- og menningartengsl. Þá fara hagsmunir landanna saman í mikilvægum málaflokkum, svo sem öryggis- og varnamálum.
„Með opnun sendiskrifstofu Íslands í Varsjá kemst loks á nauðsynleg gagnkvæmni í stjórnmálasamband ríkjanna og það er ánægjulegt að geta stigið það skref og undirstrikað hversu verðmæt vinátta þjóðanna er fyrir okkur Íslendinga. Pólska sendiráðið í Reykjavík hefur sinnt mikilvægri þjónustu við þann stóra hóp Pólverja sem býr á Íslandi. Íslenskt sendiráð í Varsjá getur að sama skapi veitt íslenskum ríkisborgurum og Pólverjum með náin tengsl við Ísland þjónustu og um leið greitt götu íslenskra fyrirtækja á þessum slóðum og gætt íslenskra hagsmuna, til dæmis á vettvangi Uppbyggingarsjóðs EES,“ er haft eftir Þórdísi í tilkynningunni.
Gert er ráð fyrir að sendiráðið verði opnað í haust og yrði það þar með 27. sendirskrifstofa Íslands erlendis.