Búið er að loka fyrir umferð um allar leiðir frá höfuðborgarsvæðinu vegna veðurs. Í morgun var lokað fyrir umferð um Þrengslin, Hellisheiði og Mosfellsheiði og svo um klukkan hálf tíu var ákveðið að loka einnig fyrir umferð upp á Kjalarnes og um Reykjanesbraut.
Fram kemur hjá Vegagerðinni að blint sé á Reykjanesbrautinni og að bílar séu þar í vandræðum. Vonast er til þess að lokunin standi í stuttan tíma. Sama er að segja um Kjalarnesið, en Vegagerðin vonast til að lokunin þar vari stutt.