Fjölgað mikið í hópi flóttafólks utan Úkraínu

Útlendingastofnun.
Útlendingastofnun. mbl.is/Hari

Töluverð aukning hefur orðið á fjölda flóttamanna sem koma frá öðrum löndum en Úkraínu til Íslands á undanförnum dögum og nemur sá fjöldi nú tugum daglega að sögn Þórhildar Óskar Hagalín, upplýsingafulltrúa Útlendingastofnunar.

Hún staðfestir þar með orð Gylfa Þórs Þorsteinssonar, sem stýrir aðgerðarhópi vegna komu flóttafólks frá Úkraínu, en hann sagði í samtali við Morgunblaðið í dag að tugir annarra flóttamanna en frá Úkraínu koma til Íslands á hverjum degi.

Gylfi Þór Þorsteinsson.
Gylfi Þór Þorsteinsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Um 585 umsóknir á árinu

Í samtali við mbl.is segir Þórhildur að „það er mikill fjöldi sem kemur á hverjum degi, en á þessu ári hafa um 585 umsóknir borist Útlendingastofnun.“ Um 300 hafa komið frá Úkraínu. Það gerir um 275 frá öðrum löndum en Úkraínu á árinu, eða sem nemur um 3,75 á dag. Eins og fyrr segir hefur sá daglegi fjöldi þó aukist talsvert síðustu daga.

Aðspurð um hversu margra megi vænta frá Úkraínu næstu vikur segir hún að það sé ómögulegt að vita fyrirfram. „Við vitum það ekki og það er ómögulegt að segja til um hversu margir munu koma frá Úkraínu. Aðstæður eru bara þannig.“

Í fyrra bárust Útlendingastofnun 871 umsókn um alþjóðlega vernd en það eru þriðjungi fleiri umsóknir en árið 2020 þegar umsóknir voru 654. Það sem af er ári er því heildarfjöldi umsókna kominn upp í 67% af fjöldanum sem sótti um í fyrra. Ef umsækjendur frá Úkraínu eru ekki meðtaldir nemur hlutfallið 31,6%, en um fimmtungur ársins er þegar liðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert