Ungur Íslendingur heillaði dómara þýska Voice

Íslendingurinn Sólveig Birta heillaði dómara þýska sjónvarpsþáttarins The Voice Kids …
Íslendingurinn Sólveig Birta heillaði dómara þýska sjónvarpsþáttarins The Voice Kids með söng sínum. Samsett mynd

Hin 12 ára gamla Sólveig Birta Hannesdóttir heillaði dómara þýska sjónvarpsþáttarins The Voice Kids upp úr skónum með söng sínum á föstudag.

Tók hún hinn fræga slagara California Dreamin' eftir fólkrokk-hljómsveitina The mamas & The papas og er óhætt að segja að Sólveig hafi slegið í gegn hjá dómurunum, sem snéru sér nær allir strax við þegar hún byrjaði að syngja.

Það að dómarnir snúi sér við sætum sínum þýðir að þeir vilji fá keppandann í sitt lið og vinna með honum í þáttunum.

Þegar Sólveig lauk flutningi sínum hlaut hún standandi lófatak frá bæði dómurum og áhorfendum þáttarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert