Vilja lækka þröskuldinn fyrir flóttafólk

Drífa Snædal, er forseti ASÍ og situr því í miðstjórn.
Drífa Snædal, er forseti ASÍ og situr því í miðstjórn. Ljósmynd/Aðsend

Miðstjórn ASÍ krefst þess að úkraínskt flóttafólk verði undanþegið kröfum um sérstaklega útgefið atvinnuleyfi. Framfærsla þeirra verði tryggð og það hljóti ríkan félagslegan stuðning á meðan það dvelur hér og meðan mál þeirra eru til meðferðar.

Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnarinnar um móttöku flóttafólks og leyfi til að vinna.

Þá vill miðstjórnin sömuleiðis að farið verði í sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir til að lækka þröskuldinn fyrir flóttafólk út á íslenskan vinnumarkað, t.d. með meira úrvali hlutastarfa og hvatningu til atvinnurekenda.

„Þótt það sé óskandi að Úkraínufólk fái fljótlega að snúa til síns heimalands, er alveg óvíst að svo verði þar sem engin leið er að sjá fyrir hversu lengi stríðsástandið mun vara í Úkraínu. Því er mikilvægt að þau sem hingað koma fái tækifæri til þátttöku í íslensku samfélagi, óháð því hvort þau munu dvelja á Íslandi til skamms eða langs tíma,“ segir í ályktuninni.

Verði ekki þrýst út á vinnumarkað

Í ályktuninni segir að samkvæmt ákvörðun stjórnvalda hljóti Úkraínubúar sem hingað sækja fyrst um sinn dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og því fylgi ekki atvinnuleyfi. Þó geti flóttafólkið hlotið alþjóðlega vernd eða annars konar ótímabundin réttindi til dvalar þegar fram líða stundir.

„Þetta gerir að verkum að fólk sem er með dvalarleyfi á þessum grunni á oft mjög erfitt með að komast inn á íslenskan vinnumarkað. Miðstjórn ASÍ áréttar mikilvægi þess að flóttafólk frá Úkraínu eigi, eins og annað flóttafólk, skilyrðislausan rétt til framfærslu og að undir engum kringumstæðum sé fólki þrýst út á vinnumarkað nema það sé tilbúið til þess.“

Eins og fram kemur telur miðstjórnin að ekki eigi að þrýsta fólki út á vinnumarkað. Þrátt fyrir það sé mikilvægt að þau sem vilja taka þátt í íslenskum vinnumarkaði fái til þess tækifæri. 

„Núverandi umhverfi laganna reisir of háar girðingar gagnvart atvinnu sem getur aukið á þjáningar fólks og getur dregið úr möguleikum þeirra til þátttöku í íslensku samfélagi. Því telur miðstjórn að þeir einstaklingar sem njóta réttar til dvalar á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eigi að vera undanþegnir sérstökum kröfum um atvinnuleyfi.“

Berskjölduð fyrir misbeitingu

Samhliða þessu telur miðstjórn að fara þurfi fram skoðun á atvinnuréttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Vísbendingar úr vinnustaðaeftirliti ASÍ bendi til þess að raunveruleg atvinnuþátttaka í þessum hópi sé miklu meiri en opinberar tölur gefa til kynna.

Þá kemur einnig fram að hópurinn sé sérstaklega berskjaldaður fyrir misbeitingu af hendi atvinnurekenda.

„Mál sem koma inn á borð stéttarfélaganna benda til þess að þessi hópur sé sérstaklega berskjaldaður fyrir misbeitingu af hendi atvinnurekenda, sem í verstu tilvikunum jaðra við mansal.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert