Vítalía Lazareva hefur lagt fram kæru til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna kynferðisofbeldis.
„Stór dagur í dag fyrir mig og vonandi fyrir betra samfélag,“ skrifar hún á Twitter.
Stór dagur í dag fyrir mig og vonandi fyrir betra samfélag. pic.twitter.com/NTundVlQ4u
— Vítalía Lazareva (@LazarevaVitalia) March 22, 2022
Vítalía steig fram í byrjun ársins og sagði frá ofbeldissambandi við kvæntan mann. Einnig sagði hún hóp manna hafa brotið kynferðislega á henni í heitum potti við sumarbústað í október árið 2020 og að vinur kvænta mannsins hefði brotið á sér í golfferð sem hún hefði farið í með ástmanni sínum.
Í viðtali við Eddu Falak í hlaðvarpsþættinum Eigin konur sagðist Vítalía ekki ætla að kæra manninn sem hún var í ástarsambandi með.
Ekki kemur fram í færslu Vítalíu á Twitter hvern eða hverja hún hefur ákveðið að kæra.