„Hvalirnir eru að bíða eftir okkur“

Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals.
Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals. mbl.is/Árni Sæberg

AFP-fréttaveitan greinir frá því að síðasta hvalveiðafyrirtæki Íslands hyggi á veiðar í sumar, í fyrsta sinn frá árinu 2018. Greint var fyrst frá þessum áætlunum í Morgunblaðinu á miðvikudag.

Í umfjöllun veitunnar er tekið fram að Ísland, Noregur og Japan séu einu ríki heimsins sem enn leyfi veiðar í atvinnuskyni.

„Ég get staðfest að við hyggjumst fara á sjóinn í sumar,“ hefur AFP eftir Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf.

„Hvalirnir eru að bíða eftir okkur,“ bætir hann við.

Hvalur skorinn í Hvalfirði eftir veiðar árið 2009.
Hvalur skorinn í Hvalfirði eftir veiðar árið 2009. AFP/Halldór Kolbeins

Hefjist í júní

Í samtali við Morgunblaðið í dag kveðst Kristján reikn­a með að veiðarn­ar hefj­ist í júní og standi fram í sept­em­ber, eft­ir því sem veður leyf­ir.

Reiknað er með að um 150 manns starfi á hval­veiðiskip­un­um, í hval­stöðinni í Hval­f­irði og í vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins í Hafnar­f­irði. Þar er hluti afurðanna unn­inn og fryst­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka