101 andlát hafa verið tilkynnt til sóttvarnalæknis sem tengjast smiti af völdum Covid-19, þar af 64 í ár. Dregið hefur úr smitum en í dag liggja 48 sjúklingar á Landspítalanum með Covid. Tveir eru á gjörgæsludeild og annar þeirra í öndunarvél.
Flest andlát tengt veirunni hafa verið meðal 70 ára og eldri, 64 talsins.
Frá fyrsta staðfesta Covid-smitinu hér á landi, 28. febrúar 2020, hafa 181.391 smit verið staðfest eða 48,2% íbúa landsins.
Á vef embætiss landlæknis hefur komið fram að veiran hafi undanfarið náð til viðkvæmari hópa, til dæmis eldra fólks og þeirra sem hafa undirliggjandi sjúkdóma eða eru á ónæmisbælandi lyfjum.
„Flest andlát hafa orðið meðal einstaklinga með undirliggjandi áhættuþætti, þó það sé ekki algilt. Þáttur Covid-19 sýkinga í andlátunum getur því verið óljós í sumum tilvikum,“ segir á heimasíðu embættis landlæknis.
Þar er tekið fram að aðeins þau andlát sem læknar meta að Covid-19 hafi valdið, stuðlað að eða á einhvern hátt átt þátt í andlátinu á að tilkynna til sóttvarnalæknis.