Banaslys í Garðabæ

mbl.is

Karlmaður á fertugsaldri lést eftir fall á vinnusvæði í Urriðaholti í Garðabæ eftir hádegi í dag.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að tilkynnt hafi verið um slysið á þriðja tímanum og héldu lögreglan og sjúkraflutningamenn þegar á staðinn, en maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Ekki hefur verið greint frá nafni hins látna að svo stöddu, en maðurinn var erlendur ríkisborgari. Lögreglan og vinnueftirlitið rannsaka nú tildrög slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert