Íslendingar svartsýnir á friðarviðræður

Frá mótmælum í Reykjavík 13. mars síðastliðinn.
Frá mótmælum í Reykjavík 13. mars síðastliðinn. mbl.is/Óttar

Íslendingar eru svartsýnir þegar kemur að friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.

Aðeins ríflega eitt af hverjum tíu er bjartsýnt á að viðræðurnar beri árangur en rúmlega tvö af hverjum þremur eru svartsýn á það. Rösklega fimmtungur er hvorki bjartsýnn né svartsýnn. Taka ber fram að könnunin var gerð dagana 18.-29. mars en að kvöldi 29. mars bárust fréttir af jákvæðri þróun friðarviðræðnanna.

Sjálfstæðismenn bjartsýnni en aðrir

Þau sem kysu Sjálfstæðisflokkinn, ef kosið yrði til Alþingis í dag, eru bjartsýnust á að friðarviðræður Rússa og Úkraínumanna beri árangur en þau sem kysu Vinstri græn, Pírata eða Framsóknarflokkinn, sem eru svartsýnust á það.

Graf/Gallup

Þá eru landsmenn einnig hóflega bjartsýnir þegar kemur að refsiaðgerðum gegn Rússum en bjartsýnin hefur þó verið að aukast. Nær helmingur telur ólíklegt að alþjóðasamfélagið geti stöðvað hernaðaraðgerðir Rússlands í Úkraínu með efnahagslegum- eða öðrum refsiaðgerðum, á meðan tæplega þriðjungur telur það líklegt og hátt í fimmtungur hvorki líklegt né ólíklegt. Í byrjun mánaðarins töldu 28% líklegt að aðgerðirnar bæru árangur en fyrir mánuði var hlutfallið 22%.

Graf/Gallup

Konur telja líklegra að átökin breiðist út

Þeim fækkar sem telja að átökin muni breiðast út en rúmlega helmingur telur nú líklegt að hernaðaraðgerðir Rússlands í Úkraínu muni leiða til hernaðarátaka í öðrum löndum. Nær fjórðungur telur það ólíklegt og hátt í fjórðungur hvorki líklegt né ólíklegt. Í byrjun mánaðarins töldu 64% líklegt að átökin breiddust út en fyrir mánuði síðan töldu sex af hverjum tíu það líklegt.

Athygli vekur að konur telja líklegra en karlar að átökin breiðist út til fleiri landa, og fólk telur það almennt líklegra eftir því sem það er yngra. Þau sem hafa meiri menntun en minni eru einnig örlítið líklegri til að telja það. Þau sem kysu Vinstri græn eða Pírata, ef kosið yrði til Alþingis í dag, telja það líklegra en þau sem kysu aðra flokka. Þau sem kysu Samfylkinguna telja það ólíklegast.

Graf/Gallup

Eldra fólk líklegra til að finna fyrir óöryggi

Ríflega 43% landsmanna telja að innrás Rússlands inn í Úkraínu muni hafa mikil áhrif á líf sitt. Það er sama hlutfall og í byrjun mánaðarins en þá hafði það hækkað frá lokum síðasta mánaðar. Hátt í þrjú af hverjum tíu telja að innrásin muni hafa lítil áhrif á líf sitt og svipað hlutfall hvorki líklegt né ólíklegt.

Þó fækkar þeim frá í byrjun mánaðar sem finna fyrir óöryggi eða ótta vegna ástandsins. Nær 55% segjast gera það á meðan rúmlega fjórðungur segist ekki gera það og nær fimmtungur hvorki né. Í byrjun mánaðarins sögðust nær 63% finna fyrir óöryggi eða ótta en ríflega helmingur í mælingunni þar á undan.

Aftur segjast konur frekar finna fyrir óöryggi eða ótta vegna ástandsins heldur en karlar. Þá er fólk almennt líklegra til að gera það eftir því sem það er eldra, og fólk yfir sextugu líklegast. Þau sem kysu Vinstri græn, ef kosið yrði til Alþingis í dag, finna helst fyrir óöryggi vegna ástandsins en síst þau sem kysu Pírata.

Graf/Gallup



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert