Viðar ósáttur við aðra úttekt á sínum störfum

Viðar Þorsteinsson.
Viðar Þorsteinsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Eflingar hefur nú í annað sinn látið hefja gerð úttektar á störfum Viðar Þorsteinssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins. 

„Fráfarandi formaður Eflingar, Agnieszka Ewa Ziólkowska, hefur um nokkurt skeið reynt að gera störf Viðar Þorsteinssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins tortryggileg í tengslum við samstarf kynningardeildar félagsins við vefhönnunarstofuna Sigur,“ segir í tilkynningu frá Viðari og Baráttulistanum þar sem tilkynnt er um úttektina.

Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte, sem vann athugun að beiðni Agnieszku á málinu, hefur staðfest að fyrirtækið gerir engar athugasemdir við umrædd viðskipti, að því er fram kemur í tilkynningunni. 

„Þrátt fyrir þetta hefur stjórn Eflingar undir forystu Agnieszku nú í annað sinn látið hefja gerð úttektar um störf Viðars vegna þessara viðskipta. Er Viðari neitað um upplýsingar, andmælarétt og eðlilega aðkomu að þessari úttekt. Sama var uppi á teningnum við gerð fyrri úttektar um störf Viðars, sem sálfræðistofan Líf og sál vann að beiðni stjórnar Eflingar.“

Oddur hafi hunsað beiðni Viðars

Fram kemur í tilkynningu að Oddur Ástráðsson lögmaður hafi upplýst Viðar f.h. stjórnar Eflingar í gegnum síma þann 29. mars að hann hefði með höndum gerð lögfræðilegrar úttektar á samstarfi kynningardeildar félagsins við Sigur vefstofu. Krafði Oddur Viðar um að koma á sinn fund.

„Viðar hefur óskað eftir að fá spurningar sendar til að geta veitt skrifleg svör, en Oddur hefur neitað að upplýsa um hverjar spurningarnar eru. Þá bauð Oddur Viðari í skeyti dags. 29. mars að skila inn skriflegum athugasemdum, við spurningum sem Viðar hefur aldrei fengið sendar eða upplýsingar um hverjar eru.

„Þegar Viðar óskaði eftir því að fá aðgang að heildardrögum væntanlegrar úttektar til að koma að sínum sjónarmiðum og andmælum svaraði Oddur: „Það kemur ekki til álita að verða við kröfum þínum um aðgang að úttektinni áður en henni er skilað til stjórnar Eflingar.““

Þá segir í tilkynningunni að Oddur hafi jafnframt hunsað beiðni Viðars um að Efling greiði lögfræðikostnað hans við að verjast ásökunum, sem fjármagnaðar eru úr sjóðum félagsmanna Eflingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert