Býður sig ekki fram

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, mun ekki gefa kost á sér í embætti forseta Alþýðusambands Íslands, en þing sambandsins fer fram næstkomandi haust.

Vilhjálmur var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins í síðustu viku. Hafa Vilhjálmur og aðrir formenn innan verkalýðshreyfingarinnar á síðustu vikum gagnrýnt núverandi forseta sambandsins.

Páll Magnússon ræddi við Vilhjálm í Dagmálum um komandi kjarasamninga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka