Hafist var handa í morgun við að skera niður dúkinn af Hamarshöllinni, sem fauk af í einu illviðri febrúarmánaðar.
Sjóvá eftirlét íþróttafélaginu dúkinn til að nota í fjáröflun. Ákveðið var að auglýsa efni hans til sölu á 1.500 krónur fermetrann, eða hæsta tilboð.
Nú eru komnir saman sjálfboðaliðar til þess að skera dúkinn niður eftir pöntunum.
Þórhallur Einisson, formaður íþróttafélagsins Hamar, segir að eftirspurnin sé töluverð.
Dúkurinn er um sex þúsund fermetrar að flatarmáli og Þórhallur áætlar að nú þegar sé búið að selja um þrjú þúsund fermetra. Þá á hann von á að fleiri pantanir muni berast eftir því sem líður á daginn, auk þess sem afgangurinn verður skorinn niður og seldur í einingum.
„Fólk er að nota þetta í allskonar skjól, breiðir yfir byggingar eða garðhýsi og svo eru ungmenna- og bæjarfélög að kaupa stærri renninga til að nota í skemmtihlaup.“
Ágóðinn mun koma félaginu vel og verður hann nýttur til uppbyggingar starfsemi þess, einkum starfsemi yngri flokka.