Fanney Bjarnadóttir hefur hafið störf sem verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Krónunni. Um nýja stöðu innan Krónunnar er að ræða og er henni meðal annars ætlað að efla áherslu Krónunnar í lýðheilsumálum, jafnt meðal starfsfólks og viðskiptavina.
Fanney er með B.Sc.-gráðu í íþrótta- og lýðheilsufræðum frá Háskóla Íslands og MS-gráðu í verkefnastjórnun frá sama skóla, að því er fram kemur í tilkynningu.
Krónan kynnti til leiks velferðarpakka Krónunnar á síðasti ári þar sem starfsfólki býðst íþróttastyrkir, sálfræðitímar, lífsstílsráðgjöf, markþjálfun og fleira. Krónan leggur mikla áherslu á hollustu í sínum verslunum og t.a.m. hefur sala á ávöxtum og grænmeti aukist um 6,6% milli ára á meðan magn sykurs (mælt í grömmum á lítra) í drykkjum seldum hjá Krónunni hefur lækkað um 9% milli ára.
„Það er mikill fengur í Fanneyju sem kemur til Krónunnar með góða þekkingu á lýðheilsumálum sem mun nýtast til að innleiða lýðheilsustefnu Krónunnar. Markmið Krónunnar er að vera leiðandi vinnustaður í lýðheilsumálum og stuðla að betri heilsu og vellíðan starfsfólks, en ekki síður að hafa smitandi áhrif út í samfélagið og til okkar viðskiptavina með heilsusamlegri hvatningu. Við hlökkum til að þróa þessar áherslur okkar frekar með Fanneyju í fararbroddi,“ segir Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar.