Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, telur réttast að Ríkisendurskoðun fari yfir útboð Bankasýslu ríkisins á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka.
„Ég tel að það muni koma vel út fyrir alla framkvæmdina,“ sagði Bjarni á Alþingi í dag þar sem Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, spurði hann um söluna.
Alls tóku 209 fjárfestar þátt í útboði Bankasýslu ríkisins á hlut ríkisins í Íslandsbanka þann 22. mars. sl. Sem kunnugt er seldi ríkið 22,5% hlut í bankanum fyrir um 52,7 milljarða króna.
Á lista þeirra sem fjárfestu í útboðinu má finna félagið Hafsilfur ehf., sem er í eigu Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra.
Halldóra spurði Bjarna hvers vegna einstaklingar með „vægast sagt“ vafasama fortíð tengda bankahruninu fengu að kaupa í útboðinu.
Hún gagnrýndi Bjarna fyrir að hafa ekki sett nógu skýrar reglur eða ramma um það hvernig fjárfestum skyldi hleypt að sölunni. „Í stað þess var um að ræða nokkurs konar villta vesturs stemningu þar sem fimm sölufyrirtæki tóku kvöldstund í að hringja í sína uppáhalds fjárfesta.“
Bjarni lagði áherslu á að gagnsæi ríkti við útboðið og að vel yrði farið yfir framkvæmdina.