Bangsar og barnaföt hengd á hlið sendiherrabústaðarins

„Liars“ hefur verið skrifað með rauðri málningu fyrir framan hlið …
„Liars“ hefur verið skrifað með rauðri málningu fyrir framan hlið sendiherrabústaðarins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Búið er að skrifa „liars“ eða lygarar með rauðri málningu á stéttina fyrir framan sendiherrabústað Rússlands við Túngötu. Þá hafa barnaföt ötuð í rauðri málningu verið hengd á hliðið við húsið og bangsar festir þar á.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Hópur Úkraínumanna stóð fyrir framan sendiherrabústaðinn þegar ljósmyndara mbl.is bar þar að garði, en fólkið málaði hvorki á stéttina né kom fötunum fyrir.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert