Fjögur ár fyrir mansal á stjúpbörnum sínum

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/Ófeigur

Íslensk kona hefur verið dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir mansal og brot í nánu sambandi gagnvart fjórum stjúpbörnum sínum. Hún var sökuð um að hafa haft þau í nauðungarvinnu þegar þau voru börn að aldri. Þetta er fyrsti dómurinn í mansalsmáli síðan árið 2010 og sá fyrsti eftir að lögum um mansal var breytt á síðasta ári.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari staðfestir í samtali við mbl.is að dómurinn hafi fallið á fimmtudaginn, en hann hefur ekki enn verið birtur á vef Héraðsdóms Reykjaness.

Voru í vinnu hjá fyrirtæki sem konan stýrði

Konan var gift föður barnanna og var í ákæru sögð hafa flutt börnin til landsins. Þá var hún sögð hafa hýst þau og útvegað þeim vinnu hjá fyrirtæki þar sem hún var verkstjóri og stýrði daglegum rekstri. Sagði í ákærunni að þrjú barnanna hefðu verið látin vinna allt að þrettán klukkustundir á dag, sex til sjö daga í viku. Fjórða barnið hafi hins vegar unnið í allt að tvær klukkustundir, þrjá daga vikunnar. Laun barnanna, sem metin voru á rúmar 16 milljónir, átti konan að hafa nýtt í eigin þágu.

Kolbrún segir að málið hafi mikla þýðingu, enda sé það fyrsti dómurinn um mansal síðan fimm menn frá Litháen voru dæmdir í 4-5 ára fangelsi fyrir að hafa svipt unga konu frelsi sínu í þeim tilgangi að láta hana leggja stund á vændi hér á landi.

Að mati Kolbrúnar verður fróðlegt að lesa dóminn þegar hann verður birtur, enda byggi hann á nýlega uppfærðum lögum um mansal. Segir Kolbrún mansalsmál snúin og að almennt þurfi að hafa þrennt í huga þegar sakfellt er fyrir slíkt. Í fyrsta lagi þurfi að sanna verknað, í öðru lagi verknaðaraðferð og í þriðja lagi þurfi að liggja fyrir tilgangur. Með börn, eins og í þessu tilviki, skiptir verknaðaraðferðin ekki máli, heldur nægir að sanna verknað og tilgang þannig að um mansal sé að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert