Nýtti sér freklega aðstöðu gegn stjúpbörnum

Konan misnotaði sér aðstæður barnanna freklega að mati dómstóla.
Konan misnotaði sér aðstæður barnanna freklega að mati dómstóla. mbl.is/Ómar Óskarsson

Íslensk kona, sem hefur verið dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir mansal og brot í nánu sambandi gagnvart þremur stjúpbörnum sínum, hafði frumkvæði að því að börnin flyttust til landsins, ásamt barnsföður þeirra sem taldi framtíðarhorfur bjartari á Íslandi.

Er konunni gert að greiða samtals um 22 milljónir í bætur til þriggja elstu barnanna sem dómurinn telur hafa unnið mest hjá konunni.

Yngsta barnið fékk engar bætur

Kröfum yngsta barnsins var vísað frá dómi. Telur dómurinn ekki sannað svo verði hafið yfir skynsamlegan vafa að stúlkan hafi unnið í einn til tvo daga í viku og um helgar, hjá fyrirtæki sem konan stýrði. Var ákæruliður yngsta barnsins eingöngu byggður á framburði þess en ekki var talið að framburður annarra vitna styðji hann nægilega. 

Staðhæfir dómurinn að ásetningur konunnar gagnvart hinum börnunum hafi verið einbeittur og hún hafi nýtt sér „freklega þá yfirburðastöðu sem hún var í gagnvart börnunum“ og brotið gegn þeim í tvö ár.

Kynntust á samfélagsmiðlum 

Föður barnanna kynntist konan á samfélagsmiðlum, hittust þau í fyrsta sinn í desember 2016 og gengu í hjónaband árið 2017.

Flutti föðurinn ásamt börnum sínum fjórum í hús sem konan átti, í ótilgreindu landi og hvatti hún manninn og börnin til þess að flytja í húsið, sem hún sagði standa autt. Sá hún um allt fyrir þau sem flutningunum tengdist, þar með talið að skrá börnin í skóla en einnig sendi hún þeim peninga. 

Síðar kvatti konan föðurinn til þess að flytjast með börnin til Íslands svo þau geti búið þar sem ein fjölskylda, auk þess sem möguleikar til náms væru betri hér á landi. Sá konan alfarið um dvalarleyfi hér á landi fyrir föðurinn og börnin en stuttu síðar hófu börnin störf í fyrirtæki sem konan stýrði.

Kom illa fram þegar faðirinn var fjarverandi

Málið kom inn á borð velferðarsviðs í lok 2020 með tilkynningu frá föður barnanna og elsta barninu en barnaverndaryfirvöld höfðu þegar hafið könnun á málinu. Laut rannsókn málsins að framkomu konunnar í garð barnanna og ásakanir um að hún væri með þau í eins konar nauðungarvinnu. Var þeim veitt sálfræðiaðstoð vegna málsins.

Unnu öll stjúpbörnin fyrir konuna samhliða skólagöngu, allt að þrettán klukkustundir á dag, sex til sjö daga í viku en um helgar hófst vinnudagurinn klukkan sex.

Vildi frekar leika en að vinna

Fjórða og yngsta barnið, sem gaf skýrslu fyrir dóm í Barnahúsi, sagði konuna ekki hafa verið góða mömmu; hún hafi öskrað mikið á sig og systkini hennar og alltaf verið reið nema í kringum föður barnanna, þegar hún hafi komið vel fram.

Byrjaði hún að vinna árið 2018 og sagðist frekar hafa viljað leika sér við vini sína en að vera í vinnunni, þar sem hún var tvo daga í viku eftir skóla og um helgar. 

Meinaði konan börnunum að stunda tómstundir og íþróttir auk þess sem þau óttuðust hana mjög vegna framkomu hennar; þegar faðir barnanna var ekki á staðnum öskraði hún á þau, lét ljót orð falla í þeirra garð og lét þau stundum krjúpa niður á hné fyrir sig. Þá hótaði hún ítrekað að endurnýja ekki vegabréf systkinanna og dvalarleyfi, og láta senda þau aftur til landsins sem þau koma frá.

Var konan sem fyrr segir dæmd til að greiða börnunum háar bætur; fyrsta barninu 8,2 milljónir, öðru 9 milljónir og þriðja 4,3 milljónir en fjórða og yngsta stjúpbarnið fékk ekki dæmdar bætur og máli þess var vísað frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert