Ríkið styrkir íþróttahreyfinguna um 500 milljónir

Sjötíu prósent fjármagnsins rennur til sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga.
Sjötíu prósent fjármagnsins rennur til sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Íþróttahreyfingin fær 500 milljónir fjárframlag frá stjórnvöldum sem mótvægisaðgerð gegn tekjutapi af völdum heimsfaraldurs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnaráðinu.

Þar segir að samkomutakmarkanir af völdum Covid-19 hafi sett verulegan svip á íþróttastarfið undanfarin misseri og hafi íþróttahreyfingin orðið af verulegum fjármunum vegna áhrifa þeirra á íþróttaviðburði.

Einnig hafi umtalsverður kostnaðarauki fylgt þátttöku í keppnisstarfi sem sætt hefur samkomutakmörkunum.

„Stjórnvöld hafa lagt ríka áherslu á að styðja við íþróttahreyfinguna og gera henni kleift að sigla í gegnum ólgusjó heimsfaraldurs. Með þessum aðgerðum sýna stjórnvöld eindreginn vilja til að halda íþróttastarfinu gangandi, stóru jafnt sem smáu, með þeim jákvæðu áhrifum sem það hefur á allt samfélagið,“ er haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamálaráðherra.

Sýna þarf fram á veruleg áhrif á rekstur og starf

Útfærsla úthlutunar og framkvæmdar verður unnin í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ).

ÍSÍ verður falið að óska eftir umsóknum um stuðning vegna fjárhagslegra afleiðinga kórónuveirunnar á einingar íþróttahreyfingarinnar. Sérsambönd, héraðssambönd og íþróttabandalög, íþróttafélög með aðild að ÍSÍ og UMFÍ og deildir innan íþróttafélaga geta sótt um stuðning.

Umsækjendur þurfa að hafa orðið fyrir tekjutapi eða kostnaðarauka vegna íþróttaviðburða sem þurfti að fella niður eða breyta verulega vegna samkomutakmarkana af völdum Covid-19. Sýna þarf fram á veruleg áhrif á rekstur og starf.

Við úthlutun styrkja verður tekið tillit til annars stuðnings sem umsækjendur hafa notið.

Í tilkynningunni kemur fram að 70% fjármagnsins renni til sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga og 30% til íþróttafélaga þar sem sérsambönd, héraðssambönd og íþróttabandalög hafi ekki fengið bætt tjón með sama hætti og íþróttafélög.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert